Singer/songwriter, saxofonist/flutist

Rósa Guðrún Sveinsdóttir er söngkona, saxfónleikari, flautuleikari, lagahöfundur og textasmiður og hefur lokið prófum í rytmískum söng, saxófónleik og kennslufræðum frá Tónlistarskóla FÍH. Hún starfar sem tónlistarmaður á ýmsum vetvangi, þó aðallega poppi/rokki og djassi. Hún hefur komið fram með eigin tónlist á ýmsum og ólíkum viðburðum eins og Iceland Airwaves, Jazzhátíð Reykjavíkur, Freyjujazz, Múlanum og Jazz í Djúpinu.
Rósa hefur gefið út 3 plötur, þar af eina sólóplötu, ein plata með djasstríóinu Meraki og ein plata með hljómsveitinni Robert the Roommate. Hún hefur einnig samið tónlist fyrir Stórsveit Reykjavíkur og eigin stórsveit.
Rósa hefur í gegnum tíðina einnig verið virkur spilari í öðrum verkefnum svo sem hljómsveit Mugison, Stórsveit Reykjavíkur, Ritvélum framtíðarinnar (hljómsveit Jónasar Sig), Meraki tríó og spilað með Emílíönu Torrini, John Grant, Láru Rúnars, Tómasi R. Einarssyni, Stórsveit Reykjavíkur, Skálmöld og fleirum.
Hér er hljóðdæmi af næstu plötu:
https://youtu.be/YxvZRndEfdY?si=InphHyeJnCnYXQVp